Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. apríl 2014 14:38
Elvar Geir Magnússon
Man Utd sagt fá Luke Shaw - 100 þúsund pund í vikulaun
Luke Shaw.
Luke Shaw.
Mynd: Getty Images
Guardian greinir frá því að Manchester United sé langt komið með að tryggja sér Luke Shaw, 18 ára vinstri bakvörð Southampton.

United mun greiða 30 milljónir punda fyrir Shaw og greiða honum 100 þúsund pund í vikulaun.

Chelsea hafði einnig áhuga á leikmanninum en sagt er að United sé til í að bjóða honum mun betri samning og það geri útslagið.

David Moyes vann að því að fá Shaw til liðsins áður en hann var rekinn í byrjun vikunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner