Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. apríl 2015 21:45
Daníel Freyr Jónsson
Tim Sherwood vill halda Cleverley
Tim Cleverley.
Tim Cleverley.
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, vill ólmur semja við miðumanninn Tom Cleverley.

Cleverley hefur spilað vel með Villa undanfarið, en hann hefur verið á láni frá Manchester United allt tímabilið.

Samningur hans hjá Rauðu djöflunum rennur út i sumar og er ljóst að barist verður um þennan 25 ára gamla miðjumann.

Við höfum svo sannarlega áhuga til að tala við Tom þegar tíminn verður réttur," sagði Sherwood, sem viðurkennir þó að viðræður munu bíða þar til sæti Villa í úrvalsdeildinni er öruggt.

Við og forráðamenn hans erum til í að bíða með þetta. Þeir vita að það er mikilvægt að halda sér í úrvalsdeildinni og Tom myndi ekki ganga í raðir liðs í Championship-deildinni."
Athugasemdir
banner
banner