Gabriel Jesus leikmaður Manchester City gæti snúið aftur á völlinn í dag þegar City mætir Arsenal í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar.
Talið var Jesus yrði frá út tímabilið en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðan í febrúar. Ef hann snýr aftur út á völlinn í dag yrði það u.þ.b mánuði fyrr en áætlað var.
Pep Guardiola var allavega nokkuð vongóður um endurkomu Garbriel Jesus um helgina á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn Arsenal.
Það verður því bæði spenna fyrir því að sjá hvort að Garbriel Jesus snúi aftur í byrjunarlið City og að sjálfsögðu fyrir leiknum sjálfum.
Enska bikarkeppnin er síðasti möguleiki Manchester City og Arsenal á titli þetta tímabilið svo bæði lið ætla sér að sjálfsögðu sigur í keppninni.
Athugasemdir