Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. apríl 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Conte: Morata er mikilvægur fyrir félagið
Morata kostaði 60 milljónir punda síðasta sumar. Giroud kostaði 18 í janúar.
Morata kostaði 60 milljónir punda síðasta sumar. Giroud kostaði 18 í janúar.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte keypti Olivier Giroud frá Arsenal í janúar og hefur franski sóknarmaðurinn látið til sín taka í vor.

Alvaro Morata og Michy Batshuayi gekk ekki nógu vel að skora fyrir Chelsea og var Batshuayi lánaður til Dortmund og Morata færður á bekkinn.

Chelsea komst í úrslitaleik FA bikarsins með sigri gegn Southampton í gær. Giroud skoraði fyrra mark leiksins á Wembley og innsiglaði Morata sigurinn þegar hann kom inn á 80. mínútu.

„Giroud hefur reynst okkur mjög vel. Mig vantaði stóran og sterkan leikmann, hann er nákvæmlega sá sem ég var að leita að," sagði Conte eftir sigurinn.

„Morata er ennþá mjög mikilvægur fyrir félagið. Hann er talsvert yngri, býr yfir minni reynslu og er ekki jafn sterkur líkamlega. Á sama tíma er Morata mjög snöggur að bregðast við og getur gert stórkostlega hluti fyrir félagið.

„Ég er virkilega ánægður að sjá þá skora í sama leik. Þeir byrjuðu saman gegn Burnley og ég var hrifinn af því hvernig þeir tengdu saman."

Athugasemdir
banner
banner
banner