Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. apríl 2018 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
De Rossi lagði kransa á minningarleiði Hillsborough
Mynd: Getty Images
Daniele De Rossi er fyrirliði Roma, sem mætir Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Leikmenn liðsins voru mættir fyrir utan Anfield fyrr í dag og stoppuðu við minningarleiði Hillsborough harmleiksins, þar sem 96 manns létust og 766 særðust fyrir 29 árum.

Málið hafði djúp áhrif á margar fjölskyldur frá Liverpool þar sem yfirvöld þögguðu það niður og kenndu áhorfendum um.

Það eru aðeins tvö ár síðan rannsókn yfirvalda leiddi í ljós að lögreglumenn og sjúkraliðar sem komu að slysinu hafi verið ábyrgir fyrir mannsfallinu.

Haldin var mínútu þögn og lagði De Rossi kransa fyrir hönd félagsins við leiðið.



Athugasemdir
banner
banner