Undanúrslitaleikir ensku bikarkeppninnar fóru fram um helgina og þeir leikir eru með í valinu á úrvalsliði helgarinnar. Chelsea vann Southampton og mun mæta Manchester United í úrslitaleiknum en Rauðu djöflarnir lögðu Tottenham á laugardag.
Í deildinni unnu Englandsmeistarar Manchester City 5-0 sigur gegn Swansea og Arsenal vann West Ham 4-1 svo eitthvað sé nefnt. Garth Crooks hjá BBC valdi lið vikunnar.
Í deildinni unnu Englandsmeistarar Manchester City 5-0 sigur gegn Swansea og Arsenal vann West Ham 4-1 svo eitthvað sé nefnt. Garth Crooks hjá BBC valdi lið vikunnar.
Markvörður: Wayne Hennessey (Crystal Palace) - Hélt Palace inn í leiknum þegar markalaust jafntefli var niðurstaðan gegn Watford.
Varnarmaður: Chris Smalling (Manchester United) - Í baráttunni um að komast með enska landsliðinu til Rússlands og frammistaða hans að undanförnu eykur líkurnar.
Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - 41 mark! Það er auðvelt að samgleðjast með Salah. Liverpool missti þó niður forystu gegn West Brom, úrslitin 2-2.
Sóknarmaður: Salomon Rondon (West Brom) - Skoraði gegn Liverpool og rétt nær að skáka Alexandre Lacazette í valinu á liði helgarinnar.
Athugasemdir