Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. apríl 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Salah um leikinn við Roma: Það verða meiri tilfinningar
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, segir að það verði tilfinningaþrungið að mæta sínu gamla félagi Roma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

Salah var í tvö tímabil hjá Roma áður en hann fór til Liverpool síðastliðið sumar.

„Þetta verður tilfinningaríkara. Á hverjum degi ræði ég við leikmenn þeirra og í gær var ég að ræða við [Francesco] Totti," sagði Salah.

„Þetta er ekki auðvelt fyrir mig. Ég elska félagið, elska borgina og veit að þeir elska mig svo þetta verður ekki auðvelt fyrir mig. Það verða meiri tilfinningar."

„Ég þekki þá. Við spiluðum saman í tvö ár og þeir vita hvernig ég spila. Ég veit hvernig þeir spila og þetta verður ekki auðveldur leikur."

Athugasemdir
banner
banner
banner