Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. apríl 2018 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Stóri Sam: Ég er ekki að senda boltann
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce er þreyttur á gagnrýninni sem hann hefur þurft að sitja undir á tímabilinu.

Everton lagði Newcastle að velli með einu marki gegn engu fyrr í kvöld og brást Stóri Sam við gagnrýninni í viðtali eftir leik.

„Við erum að skána, það er frekar augljóst. Við vorum í fimmta neðsta sæti en erum núna í áttunda sæti. Það segir allt sem segja þarf," sagði Allardyce með pirringstón.

„Hvað var að leikstílnum okkar í dag? Við stjórnuðum leiknum og áttum miklu fleiri sendingar en andstæðingarnir. Við þurftum að sýna þolinmæði.

„Það er ekki hægt að gagnrýna hvernig við spiluðum. Strákarnir klúðruðu nokkrum sendingum en það er ekki hægt að kenna mér um það, ég er ekki að senda boltann."

Athugasemdir
banner
banner
banner