Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Adriano framlengir við Barcelona
Adriano Correia, gríðarlega fjölhæfur bakvörður Barcelona, er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Barcelona og verður því innan raða félagsins þar til í júní 2017.

Adriano kom frá Sevilla árið 2010 fyrir tæplega tíu milljónir evra og eftir að hafa unnið sex titla á fimm árum með Sevilla er hann búinn að vinna átta titla sem leikmaður Barcelona.

,,FC Barcelona hefur komist að samkomulagi við Adriano Correia um að framlengja samning leikmannsins í fjögur ár, til 30. júní 2017," stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Barca.

,,Það er ákvæði í samningnum um að Barcelona geti hafnað öllum tilboðum í leikmanninn sem eru undir 90 milljónum evra."
Slapp
banner
banner
banner