Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 15:00
Elvar Geir Magnússon
Alfreð Elías spáir í komandi leiki í 1. deildinni
Spáir markaregni!
Alfreð er hér til hægri á myndinni.
Alfreð er hér til hægri á myndinni.
Mynd: Aðsend
Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Ægis í Þorlákshöfn, fylgist vel með íslenska boltanum. Fótbolti.net fékk Alfreð til að spá í spilin fyrir þriðju umferð 1. deildar karla sem hefst í kvöld og lýkur á laugardag.

Þróttur 3 - 1 Tindastóll (í kvöld 19:15 beint á Sporttv.is)
Þetta er mjög áhugaverður leikur. Þróttarar verða að fara að komast á blað og ég spái því að þeir geri það í kvöld og vinni 3-1 sigur.

Selfoss 3 - 2 Haukar (í kvöld 19:15)
Svakalegur leikur á Selfossi þar sem verður nóg af mörkum. Ingi Rafn skorar tvö í hörkuleik og Selfoss vinnur annan leikinn í röð.

Fjölnir 2 - 2 Víkingur R. (annað kvöld 19:15 beint á Sporttv.is)
Ég sá þegur Víkingar léku á móti Grindavík og þeir voru mjög flottir þar. Við Ægismenn spiluðum á móti Fjölni rétt fyrir mót og þeir líta vel út svo ég set X á þennan leik.

KF 1 - 3 KA (laugardag kl. 14)
Bjarni Jó og hans menn eru að fara vinna þennan. Þeir voru svekktir með að ná ekki sigri í síðasta leik og taka stigin þrjú núna.

Grindavík 2 - 2 BÍ/Bolungarvík (laugardag kl. 14 beint á Sporttv.is)
Verður gaman að sjá hvernig Grindavík gengur með vel mannað lið BÍ/Bolungarvíkur. Ég segi að þessi leikur endi með jafntefli 2-2. Jói Helga og Scotty skora fyrir Grindavík en Andri Rúnar með bæði fyrir BÍ/Bolungarvík.

Völsungur 1 - 2 Leiknir (laugardag 16:30)
Gettoboys eru að fara í ferðalag til að taka þrjú stig og þeir vinna sinn fyrsta sigur. Litli Færeyingurinn verður með tvö mörk.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner