Þriðji þáttur af sjónvarpsþættinum Fótbolta.net er á dagskrá á morgun en þátturinn er á dagskrá á SportTv klukkan 12:30 á föstudögum og sýndur bæði á netinu og í sjónvarpi.
Hver þáttur er um 40 mínútur að lengd en umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.
Hver þáttur er um 40 mínútur að lengd en umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.
Dagskrá í þætti þrjú :
- Hjörtur Júlíus Hjartarson kemur í heimsókn og ræðir um Pepsi-deildina
- Baldur Sigurðsson leikmaður KR kíkir við
- Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis kemur og ræðir um 1. deildina auk þess sem myndbrot verða sýnd úr leikjum þar
- Áskorun bræðranna Daníels og Jóhanns Laxdal verður frumsýnd en þeir sungu lag um móður sína
Þátturinn er í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv
Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá brot úr eldri þáttum




