Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 19:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Bastian Schweinsteiger vorkennir Mario Götze
Bastian Schweinsteiger, leikmaður Bayern München, finnur til með Mario Götze, leikmanni Borussia Dortmund, sem mun missa af úrslitaleik Meistaradeildarinnar vegna meiðsla.

Í gær var tilkynnt að Götze getur ekki verið með Dortmund þegar liðið mætir Bayern München á Wembley á laugardagskvöld.

Götze hefur verið lykilmaður Dortmund undanfarin ár en úrslitaleikurinn hefði verið hans síðasti leikur með liðinu, einmitt gegn framtíðarliði hans en hann verður liðsfélagi Schweinsteiger hjá Bayern München í sumar.

,,Þetta hefði líka verið hans stærsti leikur á ferlinum, hann er fínn náungi og þess vegna þykir mér og hinum þetta leitt," sagði Schweinsteiger.

,,En leikmaður sem býr yfir svo miklum gæðum á örugglega eftir spila einn eða annan úrslitaleik í Meistaradeildinni."

,,Það veikir Dortmund kannski aðeins að Götze geti ekki verið með, hann er frábær leikmaður og þess vegna var hann keyptur til FC Bayern. En samt mun Dortmund hafa ellefu leikmenn á vellinum sem munu leggja allt í sölurnar til að vinna."

Slapp
banner