Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 11:00
Magnús Már Einarsson
Benteke: Verð ekki neyddur til að vera hjá Aston Villa
Belgíski framherjinn Christian Benteke gæti yfirgefið herbúðir Aston Villa í sumar.

Benteke skoraði 19 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og mörg félög hafa sýnt honum áhuga í kjölfarið.

,,Ef Aston Villa segir að ég verði að vera áfram þá mun ég ekki endilega samþykkja það," sagði Benteke.

,,Ég vil ekki finna þá tilfinningu að ég hafi ekki náð því besta út úr ferli mínum."

,,Auðvitað er það í huga mínum að spila á HM í Rio en ég óttast ekki að detta úr liðinu. Ég mun ákveða ásamt fjölskyldu minni hvar framtíð mín liggur."

Slapp
banner
banner
banner