Heimild: Yahoo
Fiorentina hefur staðfest komu Oleksandr Jakovenko frá belgíska félaginu Anderlecht.
Jakovenko er 25 ára gamall kantmaður sem komst ekki í byrjunarlið Anderlecht og var því lánaður út til Westerlo og OH Leuven í tvö tímabil.
Jakovenko er 25 ára gamall kantmaður sem komst ekki í byrjunarlið Anderlecht og var því lánaður út til Westerlo og OH Leuven í tvö tímabil.
Jakovenko var hins vegar frábær á síðasta tímabili með Anderlecht þar sem hann lék 38 leiki, skoraði 9 mörk og átti stóran þátt í deildarsigri Anderlecht.
Fiorentina rétt missti af meistaradeildarsæti til AC Milan í ítölsku deildinni og er því að styrkja liðið fyrir Evrópudeildina undir stjórn hins sigursæla Vincenzo Montella.
Jakovenko skrifaði undir þriggja ára samning, eða til 2016, og er keyptur til að breikka leikmannahópinn.

