,,Við náum ekki að nýta færin og við þurfum aðeins að taka á því," sagði Páll Einarsson þjálfari Þróttar eftir 2-1 tap liðsins gegn Tindastóli í 1. deildinni í kvöld.
Þróttarar vildu fá vítaspyrnu í síðari hálfleik þegar Sveinbjörn Jónasson féll í teignum en Sigurður Óli Þorleifsson dómari leiksins spjaldaði framherjann fyrir leikaraskap.
,,Dómarinn dæmir og við verðum að vfara eftir því sem hann gerir. Ég hefði viljað fá víti. Það var klárlega snerting en við ráðum því ekki. Það er dómarinn sem tekur ákvörðun og við förum eftir því."
Þróttarar eru án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar í deildinni. ,,Það eru bara þrír leikir búnir og það er hellingur eftir. Þessi deild spilast skringilega og við erum rólegir ennþá. Við tökum bara næsta leik og komum bara inn í mótið þannig."
,,Við höfum spilað ágætlega það sem af er móti og við höldum því áfram. Þetta hlýtur að detta með okkur og verða stöngin inn að lokum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























