Rio Ferdinand hefur gert nýjan eins árs samning við Manchester United.
Samningur Ferdinand átti að renna út í sumar en nú er ljóst að hann mun leika áfram með liðinu undir stjórn David Moyes á næsta tímabili.
Samningur Ferdinand átti að renna út í sumar en nú er ljóst að hann mun leika áfram með liðinu undir stjórn David Moyes á næsta tímabili.
Þessi 34 ára gamli varnarmaður átti gott tímabil með Manchester United en hann hjálpaði liðinu að verða enskur meistari.
Ferdinand hefur leikið með Manchester United síðan árið 2002 en hann kom til félagsins frá Leeds.


