Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Inside Spanish Football 
Santos hafnaði tilboði Barcelona í Neymar
Santos hafnaði 22 milljón evra tilboði Barcelona í Neymar og telur varaforseti Santos tilboðið fráleitt.

Neymar er 21 árs gamall og talinn meðal allra bestu leikmanna heims þó hann hafi aldrei sannað sig utan Suður-Ameríku.

Samkvæmt brasilíska dagblaðinu Globoesporte hafnaði Santos fyrst 17 milljón evrum og síðar 22 milljónum, sem varaforsetinn Odilio Rodriguez telur fráleitt því hann vill fá 50 milljónir fyrir leikmanninn.

,,Santos er búið að skoða tilboðin sem hafa borist en það síðasta vekur ekki upp áhuga okkar," sagði Rodriguez.

,,Við höfnuðum boðinu. Við höfum bara fengið eitt opinbert tilboð og fjárhagsnefndin segir að það sé ekki hagstætt tilboð.

,,Neymar verður áfram með liðinu. Samningur hans rennur ekki út fyrr en á næsta ári. Real Madrid hefur einnig áhuga en ég get ekki rætt smáatriði."


Santos vonast til að draga viðræðurnar framyfir Álfubikarinn í sumar þar sem félagið vonast til að Neymar skíni á mótinu og hækki þar með verðmiðann á sér.
Slapp
banner
banner