Heimild: Sky
Spænksi varnarmaðurinn Sergio Ramos telur að Gareth Bale passi vel inn í lið Real Madrid.
Bale hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid og Ramos væri til í að sjá hann í sínu liði.
Bale hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid og Ramos væri til í að sjá hann í sínu liði.
,,Gareth Bale er leikmaður í gæðaflokki fyrir Real Madrid," sagði Ramos.
,,Hann hefur átt stórkostlegt tímabil. Hann getur refsað öllum liðum í heimi og hann hefur fótbolta hæfileika sem við leitum að í Madrid."
,,Ég er viss um að Madrid verður ekki eina félagið sem reynir að krækja í hann en hann passar vel í lið okkar."


