UEFA ætlar að gefa sigurvegurum Evrópudeildarinnar sæti í Meistaradeildinni frá og með tímabilinu 2014-15. Guardian segir að þetta verði tilkynnt formlega á föstudag.
Þá verða reglubreytingar á þann veg að lið sem vinnur Meistaradeildina eða Evrópudeildina en nær ekki Meistaradeildarsæti í deildinni heima mun ekki fá sæti á kostnað annars liðs sem er ofar í deildinni. Nýja sætið kemur aukalega.
Í fyrra missti Tottenham af Meistaradeildarsæti þrátt fyrir að enda í fjórða sæti þar sem Chelsea vann Meistaradeildina og endaði í sjötta sæti. Þessar aðstæður geta ekki endurtekið sig heldur mun England fá fimm fulltrúa í keppnina.
Þessar breytingar eru teknar upp til að reyna að gera Evrópudeildina að eftirsóknarverðari keppni en vinsældir hennar hafa ekki náð þeim hæðum sem stefnt var að.
Þá er það að frétta úr herbúðum UEFA að herða á refsingar þegar kemur að kynþáttaníð og lágmarksrefsing verður tíu leikja bann. Þá verður lágmarksrefsing fyrir að ráðast á dómara fimmtán leikja bann en var áður tíu.




