Jerome Thomas og Gonzalo Jara eru báðir á förum frá West Bromwich Albion.
Báðir leikmennirnir voru á láni á nýliðnu tímabili, Thomas hjá Leeds og Jara hjá Nottingham Forest.
Báðir leikmennirnir voru á láni á nýliðnu tímabili, Thomas hjá Leeds og Jara hjá Nottingham Forest.
Thomas skoraði 13 mörk í 106 leikjum með WBA en hann kom til félagsins frá Portsmouth árið 2009.
Jara kom til WBA frá Colo Colo í Síle árið 2009 og lék 61 leik með félaginu.
WBA hefur hafið viðræður um nýja samninga við Zoltan Gera og Steven Reid sem verða samningslausir í sumar.


