Titus Bramble mun yfirgefa herbúðir Sunderland þegar samingur hans rennur út í sumar. Bramble er einn af þeim leikmönnum sem Paolo Di Canio stjóri Sunderland er ósáttur við.
Talið er að Di Canio hafi sektað Bramble um fjögurra vikna laun fyrir að skrópa í sjúkraþjálfun en varnarmaðurinn hefur sjálfur greint frá því að hann sé á förum í sumar.
Talið er að Di Canio hafi sektað Bramble um fjögurra vikna laun fyrir að skrópa í sjúkraþjálfun en varnarmaðurinn hefur sjálfur greint frá því að hann sé á förum í sumar.
,,Ég hef átt þrjú frábær ár hjá félaginu og ég vil þakka stuðningsmönnum fyrir stuðninginn," sagði Bramble á Twitter í dag.
Bramble hefur oft gert sig sekan um slæm mistök í gegnum tíðina en sögusagnir eru um að hann muni leika í MLS-deildinni í Bandaríkjunum á næsta tímabili.
Bramble er 31 árs gamall en hann hefur einnig leikið með Ipswich, Newcastle og Wigan á ferli sínum.


