Guðlaugur Victor Pálsson fótboltamaður hefur verið einstaklega duglegur við að styrkja Barnaspítala Hringsins. Á dögunum var styrktarkvöldverður þar sem söfnuðust 4,2 milljónir króna sem Guðlaugur Victor afhenti í dag.
Guðlaugur hafði ásamt Gísla Guðmundssyni, Jóni Erni Stefánssyni, Marteini Þorkelssyni og Rúti Snorrasyni staðið að góðgerðarkvöldverði. Margir skemmtikraftar gáfu vinnu sína og Auðunn Blöndal var veislustjóri.
Guðlaugur Victor leikur með NEC Nijmegen í Hollandi en honum gekk vel með liðinu á liðnu tímabili.
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá viðtal sem tekið var við hann á Barnaspítalanum í dag.
























