Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. maí 2015 08:30
Stefán Haukur
Adebayor fær frí á móti Everton
Mynd: Getty Images
Tottenham hafa ákveðið að gefa Emmanuel Adebayor frí á sunnudagin þegar liðið mætir Everton í síðasta leik tímabilsins.

Á miðvikudaginn setti Adebayor inn færslu á Facebook þar sem hann opinberaði að hann hefði íhugað sjálfsmorð vegna persónulegra vandamála sem hann er að eiga við.

„Þetta er hans einkalíf og það er virkilega erfitt fyrir mig að segja mína skoðun á þessu máli," sagði Pochettino.

„Þetta er erfitt fyrir hann og þess vegna leyfðum við honum að fara heim til Togo að laga sín fjölskylduvandamál. Ég ræddi við hann snemma í vikunni."

Pochettino var spurður hvort Adebayor yrði áfram hjá Tottenham.

„Það er önnur tegund vandamáls og við getum ekki sagt til um það strax"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner