„Mér fannst þetta sanngjarn sigur hjá Grindavík. Þeir voru töluvert betri en við í dag," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari Gróttu eftir 2-0 tap í Grindavík í dag.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 0 Grótta
„Við náðum okkur aldrei á strik, við sköpuðum okkur fá færi. Reyndar hefðum við geta grísast til að skora mark i lokin, og þetta voru frekar ódýr mörk sem við fengum á okkur. Það er ekki hægt að líta framhjá því að Grindavík skapaði sér töluvert af færum og eru vel að sigrinum komnir. Sanngjarn sigur hjá Grindavík."
„Ég hefði viljað sjá okkur ákveðnari í því sem við vorum að gera. Við vorum of ragir í okkar aðgerðum og það var ekki það sem við lögðum upp með. Það gæti verið skýring að við vorum að fara í fyrsta skipti á gras og þeir voru eins og beljur á svelli."
Kristján Ómar Björnsson miðjumaður Gróttu mætti illa stemmdur til leiks í dag og Gunnar endaði á að taka hann af velli á 35 mínútu þegar hann var nýkominn með gult spjald.
„Kristján Ómar var með ælupest og taldi sig vera orðinn klárann í leikinn. Í fyrrinótt var hann ælandi og hann var ekki með neina orku. Hann taldi sig kláran en svo var hann ekki klár því miður. Okkur munaði mikið um að missa Kristján af velli."
Athugasemdir