Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. maí 2015 21:15
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: SkySports 
Khedira ósáttur við Real Madrid
Khedira hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Real Madrid og róar á önnur mið í sumar
Khedira hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Real Madrid og róar á önnur mið í sumar
Mynd: Getty Images
Sami Khedira, miðjumaður Real Madrid hefur sakað félagið um að halda honum úti úr liðinu, óháð því hvort hann sé meiddur eða ekki.

Khedira mun yfirgefa Real í sumar þar sem samningur hans rennur út en samningsviðræður sigldu í strand. Hann hefur verið orðaður við Juventus og fjöldan allan af enskum liðum, svo sem Liverpool, Chelsea, Manchester City og Arsenal.

„Ég var aðeins meiddur og með smá sársauka á hægri hælnum, en það er ekki ástæðan fyrir að ég var ekki að spila. Þetta voru flókin meiðsli en ég var tilbúinn."

„Þetta er ekki sá endir sem ég vildi hafa. Það er sársaukafullt að vera sakaður um að vera ekki fagmannlegur því ég hef alltaf sett liðið í forgang yfir sjálfan mig."


Khedira er ekki í leikmannahópi Real Madrid fyrir lokaleikinn í La Liga en Khedira segir að enginn í klúbbnum hafi talað við hann um það.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner