Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 23. maí 2015 10:41
Hafliði Breiðfjörð
Pape: Hef fengið nóg af að vera í Víkingi
Pape Mamadou Faye hefur kvatt Víking.
Pape Mamadou Faye hefur kvatt Víking.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég hef nokkrum sinnum farið á fund með þjálfurunum og fengið stöðuna hvernig mér hefur liðið og hvernig þeirra aðferðir gangvart mér hafa ekki verið að ganga upp.''
,,Ég hef nokkrum sinnum farið á fund með þjálfurunum og fengið stöðuna hvernig mér hefur liðið og hvernig þeirra aðferðir gangvart mér hafa ekki verið að ganga upp.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Með framhaldið þá er ég ekki viss eins og staðan er núna en eitt er víst að ég er langt frá því að hætta í fótbolta!''
,,Með framhaldið þá er ég ekki viss eins og staðan er núna en eitt er víst að ég er langt frá því að hætta í fótbolta!''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pape Mamadou Faye fyrrverandi framherji Víkings ritaði færslu á Facebook síðu sína klukkan 01:00 í nótt og útskýrði þar ákvörðun sína að hætta hjá félaginu. Eins og kom fram í gær tilkynnti Pape leikmönnum Víkings í fyrrakvöld að hann hafi ákveðið að hætta hjá félaginu og Ólafur Þórðarson þjálfari liðsins sagð hann hafa misst gleðina.

Pape útskýrir málið svo í ítarlegum pistli á Facebook síðu sinni í nótt þar sem hann segist hafa fengið nóg af því að vera í Víkingi. Hann er ósáttur við framkomu í sinn garð þar sem hann er látinn spila út úr stöðu og ekki metinn fyrir það sem hann telur sig gera best. Gagnrýnir hann þar Ólaf þjálfara.

Hann ítrekar þó að hann sé ekki hættur í fótbolta en hann getur þó ekki fundið sér nýtt félag fyrr en 15. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar að nýju. Pistil Pape má sjá í heild sinni hér að neðan.



Pistill Pape:
Kæru vinir mínir og félagar, ég vill fá tækifæri á að úrskýra mitt mál eftir allt sem hefur gengið á í dag í fjölmiðlum.

Eins og flestir vita þá hef ég ákveðið að hætta í Vikingur R. eftir 3 ára veru mína þar. Ég hef bæði upplifað frábæra og erfiða tíma hjá þessu félagi og er ég þakklátur fyrir minn tíma og reynslu hjá Víkingur R.

Þetta hefur verið að byggjast upp núna í langan tíma og seinustu vikur hef ég fengið nóg á að vera þar. Ég hef nokkrum sinnum farið á fund með þjálfurunum og fengið stöðuna hvernig mér hefur liðið og hvernig þeirra aðferðir gangvart mér hafa ekki verið að ganga upp. Ég hef verið að glíma við það að spila út úr stöðu og ekki vera metinn fyrir það sem ég geri best.

Ég er uppalinn framherji og vill vera metinn fyrir mína framistöðu og allt sem ég hef lagt á mig fyrir klúbbinn. Stundum er bara of erfitt að þola of mikla gagnrýni og vera ekki metinn af þjálfara félagsins.

Ég vill meina að ég gaf allt sem ég gat fyrir Vikingur R. og var tilbúinn að fara all in þetta tímabil. Því miður ganga hlutirnir ekki upp og vona ég að allt gangi vel hjá Vikingur R út tímabilið.

Fyrir þá sem eru eitthvað efins útaf þessari tímasetningu, að ég vill hætta hjá VIkingur R. þá kemur það því ekkert við. Ég hef verið núna að hugsa þetta í smá tíma og held ég að þetta sé rétta ákvörðun fyrir mig.

Í fótbolta þarftu að láta þér líða vel til að spila vel en þegar þú hefur ekki stuðning þjálfara þá getur verið erfitt að spila með gleðinni. Þar hef ég verið að glíma við ástríðuna að spila fótbolta. Undanfarin ár hef ég sýnt þolinmæði á skipulagi þjálfara og félagsins en ég sá ekki neitt sam gat hjálpað mér að þroskast sem leikmanni hjá þessu félagi lengur.

Ég hef elskað að spila fótbolta síðan ég var lítill og það hefur ekkert breyst en að vera hjá klúbb sem maður líður ekki vel í þá ganga hlutirnir ekki upp.

Ég ætlaði að harka þetta að mér og spila út tímabilið en ég hafði rangt fyrir mér og varð að bregðast við fyrir sjálfan mig og stíga til hliðar.

Ég biðst innilegar afsökunar á öllum þeim sem ég er að valda vonbrigðum en á sama tíma þá vona ég að þeir sýna skilning á minni ákvörðun og því sem ég er að ganga í gegnum.

Með framhaldið þá er ég ekki viss eins og staðan er núna en eitt er víst að ég er langt frá því að hætta í fótbolta!
Athugasemdir
banner
banner