„Þetta var hörkuleikur og það var hrikalega svekkjandi að fara í burtu með ekkert stig því að mér fannst við eiga skilið eitt stig ef ekki þrjú," sagði Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban leikmaður Aftureldingar eftir 2-1 tap gegn Leikni Fáskrúðsfirði í 2. deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Leiknir F.
„Við vorum óheppnir á mörgum stöðum að drulla ekki boltanum inn og maður er svekktur því að mér fannst við ekki vera verri."
Afturelding fékk vítapsyrnu í fyrri hálfleik en Wentzel Steinarr þrumaði þá í slána.
„Ég trúi varla hvernig ég fór að þessu. Ég var löngu búinn að ákeða að setja hann á mitt markið. Ég fór undir boltann og hann fór í slánna. Þetta var fáránlegt því að markvörðurinn var löngu farinn."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir