Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
   mán 23. maí 2016 22:41
Jóhann Ingi Hafþórsson
Stjörnuvelli
Rúnar Páll: Fannst við eiga skilið eitt stig og gott betur
Rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar Páll Sigmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigundsson, þjálfari Stjörnunnar, var þokkalega sáttur við 1-1 jafntefli á móti FH í kvöld.

FH-ingar komust yfir í fyrri hálfleik en Hilmar Árni Halldórsson kom af bekknum og jafnði undir lokin og þar við sat.

Hann segir gott að hafa jafnað í lokin og segir sitt lið hafa jafnvel átt meira skilið.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 FH

„Það var mjög gott að jafna þetta í lokin, við vorum miklu betri aðilinn í seinni hálfleik og sköpuðum okkur fullt af möguleikum og vorum stórhættulegir. Mér fannst við eiga skilið eitt stig og gott betur."

„Fyrsta korterið var einstefna en svo koma FH-ingarnir inn og tóku yfir leikinn. Þeir sköpuðu sér ekki mikið en fengu 2-3 hornspyrnur og þar eru þeir sterkir."

Hann segist nokkuð ánægður með að hafa gert jafntefli á móti KR og FH í síðustu tveim leikjunum en Stjarnan er eina taplausa liðið í sumar.

„Þetta eru erfiðir leikir eins og allir leikirnir eru. Við erum búnir að fara í gegnum mjög erfiða leiki."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner