Þriðju umferð Inkasso-deildarinnar lauk á laugardaginn með fjórum leikjum.
Í Kórnum mættust HK og Þór frá Akureyri, en það fór svo að gestirnir frá Akureyri höfðu betur 2-1.
Mörk Þórs gerðu gerðu þeir Kristinn Þór Björnsson og Agnar Darri Sverrisson, en mark HK gerði Ísak Óli Helgason.
Hér í meðfylgjandi myndbandi má sjá mörkin úr leiknum í Kórnum og einnig fylgir með dauðafæri sem Þór fékk á lokamínútu leiksins.
Þá léku KA og Huginn á KA-vellinum, en heimamenn komust yfir eftir 49 mínútna leik með marki frá Elfari Árna Aðalsteinssyni.
Juraj Grizelj tvöfaldaði forystuna með marki 20 mínútum síðar og Friðjón Gunnlaugsson minnkaði muninn undir lokin en nær komust gestirnir ekki og KA vann 2-1.
Leikurinn var sýndur beint á KA-TV og má sjá mörkin úr leiknum hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir