Atletico Madrid og Inter hafa áhuga á að fá Salomon Rondon, framherja WBA, í sínar raðir samkvæmt frétt Sky í dag.
West Ham hefur líka sýnt Rondon áhuga en hann spilaði með Malaga undir stjórn Manuel Pellegrini sem tók í gær við Hömrunum.
Rondon, sem er frá Venezuela, má fara frá WBA á 16 milljónir punda eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 28 ára gamli Rondon kom til WBA frá Zenit St Pétursborg á tólf milljónir punda árið 2015.
Síðan þá hefur hann skorað 28 mörk í 102 leikjum með WBA.
Athugasemdir