mið 23. maí 2018 23:00
Ingólfur Stefánsson
Jordi Alba vonar að Liverpool vinni Meistaradeildina
Mynd: Getty Images
Jordi Alba, vinstri bakvörður Barcelona og spænska landsliðsnins vonast til þess að Liverpool nái að sigra Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn.

Hann segir að hann vonist alltaf til þess að Real Madrid tapi öllum leikjum sínum.

„Þetta er svolítið skrítið samband. Mér líkar vel við leikmenn Real og okkur kemur vel saman en ég vill samt að þeir tapi öllum leikjum sínum."

„Ég óskaði þeim til hamingju með að vera komnir í úrslitaleikinn en ég hefði viljað sleppa því."


Liverpool er liðið sem stendur í vegi fyrir þriðja sigri Real Madrid í Meistaradeildinni í röð. Liverpool komust í úrslitaleikinn eftir að hafa slegið út Roma en það voru Roma sem slógu Barcelona út úr keppninni eftir ótrúlega endurkomu fyrr á tímabilinu.

Barcelona voru þó ekki í neinum vandræðum heima fyrir og unnu spænsku deildina örugglega á meðan Real Madrid endaði í þriðja sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner