„Ég er mjög glöð með spilamennskuna okkar. Valur er með rosa gott lið en ég hefði alveg viljað fá meira úr þessum leik. Stig hefði verið vel þegið,“ sagði Laufey Björnsdóttir, miðjumaður HK/Víkings, eftir 2-0 tap gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 HK/Víkingur
„Þetta var svolítið kaflaskipt. Við áttum mjög góða spretti og við hefðum getað sett á þær mörk. Svekkjandi að fá ekki eitthvað út úr þessu,“ sagði Laufey um leikinn.
Laufey gekk til liðs við HK/Víking í haust eftir að hafa verið í herbúðum Vals síðustu sex tímabil. Hvernig fannst henni að mæta á sinn gamla heimavöll?
„Það var mjög skrítið. Ég bjóst ekki við að það yrði svona skrítið en þegar ég mætti þá dundi það yfir mig. En ég var fljót að jafna mig á því.“
Þrátt fyrir tapið segir Laufey að það sé góður andi og sjálfstraust í liðinu.
„Við erum alveg að sjá að við eigum fullt í þessi lið. Við berum hausinn hátt. Við erum með sjálfstraust og höldum því áfram og mætum í leikina til að taka stig.“
Nánar er rætt við Laufeyju í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir