Logi Ólafsson þjálfari Víkings var sáttur með spilamennsku sinna manna eftir markalaust jafntefli gegn Breiðabliki í Pepsi-deild karla í kvöld.
„Mér fannst við svara kallinu ágætlega. Við vorum góðir í dag og sköpuðum okkur færi, sérstaklega í byrjun leiks."
Blikar sóttu stíft á síðustu mínútunum og Logi viðurkennir það að hann hafi ekki verið rólegur í lokakafla leiksins.
„Við vorum kannski svolítið slakir, orðnir þreyttir síðustu 10 mínúturnar og þá fá Breiðablik færi og skjóta í slánna og stöngina."
„Ég er bara ánægður með framlag manna í dag ég get ekki annað en verið sáttur."
Varnarleikur Víkinga var sterkur í dag.
„Það er alltaf markmiðið að fara í hvern einasta leik án þess að fá á okkur mark og það tókst okkur í dag, við hefðum bara átt að nýta færin betur."
Viðtalið við Loga má sjá í heild sinni hér að ofan en þar talar hann meðal annars um það hvort að Kári Árnason muni komast í byrjunarliðið eftir þennan leik.
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn.

Athugasemdir