Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Valerenga, var valinn í landsliðshóp Íslands fyrir HM í sumar.
Samúel Kári hefur verið öflugur á miðjunni hjá Valerenga og U21 árs landsliði Íslands.
Þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði hægri bakvörð með íslenska landsliðinu gegn Mexíkó í vináttuleik í mars.
Samúel Kári hefur verið öflugur á miðjunni hjá Valerenga og U21 árs landsliði Íslands.
Þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði hægri bakvörð með íslenska landsliðinu gegn Mexíkó í vináttuleik í mars.
Samúel er uppalinn hjá Keflavík en hann fór ungur til Reading á Englandi.
Valerenga fékk hann síðan í sínar raðir árið 2016.
Lítið hefur sést af svipmyndum úr leikjum með Samúel undanfarin ár en hér að neðan má sjá hann í leikjum með Valerenga í fyrra og í ár.
Athugasemdir