Óli Jó, þjálfari Íslandsmeistara Vals var að vonum ósáttur við tap sinna manna gegn Grindavík í kvöld.
„Tilfinningin er súr. Við erum í smá brekku núna. Fúlt að tapa þessu, fannst það ekki sanngjarnt en það er ekki spurt að því," sagði Óli Jó.
Óli gerði breytingar á liði sínu fyrir leikinn og fór í fjögurra manna varnarlínu.
„Ég er með stóran hóp og við höfum verið að spil tvö system. Við vorum á útivelli gegn fínu liði þannig við ætluðum að þétta raðirnar aðeins."
Ákveðið bras hefur verið á stigasöfnun Valsmanna í sumar en þeir eru með sex stig eftir fimm umferðir.
„Það er ekki sem við vorum að gera okkur vonir um. Ég hefði viljað vera með fleiri stig."
Haukur Páll þurfti að fara útaf í fyrri hálfleik vegna höfuðhöggs. Óli segir hins vegar að staðan sé góð á honum.
„Allt fínt að frétta af honum. Hann fékk höfuðhögg en ekki heilahristing. Ég held að hann verði góður á morgun," sagði Óli.

Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 1 Valur
Athugasemdir