Þór/KA 2 - 0 KR
1-0 Lillý Rut Hlynsdóttir ('53 )
2-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('85 )
Þór/KA og KR mættust í fyrsta leik dagsins í Pepsi-deild kvenna, á Akureyri.
Leiknum lauk með 2-0 sigri Þór/KA sem fara á toppinn með sigrinum.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Lillý Rut Hlynsdóttir Þór/KA yfir eftir hornspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
Þór/KA var töluvert sterkari aðilinn í leiknum og Sandra Stephany Mayor gulltryggði sigurinn með marki á 86. mínútu.
Þór/KA hafa unnið alla fjóra leiki sína í deildinni hingað til og fara með sigrinum upp fyrir Breiðablik ,sem á leik til góða, í fyrsta sæti deildarinnar.
KR eru í 8. sæti með þrjú stig eftir fjóra leiki.
Smelltu hér til þess að lesa nánar um leikinn.

Athugasemdir