Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. maí 2018 09:18
Magnús Már Einarsson
Rooney á leið í læknisskoðun hjá DC United
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, leikmaður Everton, er á leið til Bandaríkjanna þar sem hann fer í læknisskoðun hjá DC United í MLS deildinni.

Rooney mætir til Washington á morgun og í kjölfarið fer hann í læknisskoðun en Sky greinir frá þessu í dag.

Hinn 32 ára gamli Rooney er að kveðja ensku úrvalsdeildina eftir að hafa spilað þar síðan 2002.

Rooney fór frá Everton til Manchester United árið 2004 en hann gekk aftur til lið við uppeldisfélag sitt Everton síðastliðið sumar.

Rooney, sem hætti að spila með enska landsliðinu árið 2016, hefur nú ákveðið að fara til Bandaríkjanna og spila í MLS deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner