Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 23. maí 2018 08:38
Magnús Már Einarsson
Siggi Raggi rekinn í Kína - „Göngum stoltir frá borði"
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Mynd: Getty Images
Sigurður Ragnari Eyjólfssyni, þjálfara kínverska kvennalandsliðsins, hefur verið sagt upp störfum og Jia Xiuquan hefur verið ráðinn í hans stað.

Sigurður Ragnar var ráðinn þjálfari kínverska landsliðsins í nóvember en með honum í þjálfarateyminu komu Halldór Björnsson og Dean Martin frá Íslandi.

Áður var Sigurður Ragnar þjálfari hjá Jiangsu Suning í kínversku úrvalsdeildinni í eitt tímabil.

Hinn 44 ára gamli Sigurður Ragnar þjálfaði íslenska kvennalandsliðið frá 2006 til 2013 en hér að neðan er yfirlýsing sem hann sendi frá sér í dag.

Tilkynning frá Sigurði Ragnari
Í dag tilkynnti kínverska knattspyrnusambandið um ráðningu á nýjum A-landsliðsþjálfara kvenna. Að mati yfirmanna knattspyrnusambandsins voru úrslit og frammistaða liðsins ekki í samræmi við væntingar þeirra og þvi var mér, þjálfarateyminu og öllum starfsmönnum liðsins sagt upp störfum.

Ég hefði að sjálfsögðu kosið að fá meiri þolinmæði til verksins en tæplega 6 mánuði enda tekur lengri tíma en það að mínu mati að byggja upp nýtt landslið en því miður fengum við ekki þolinmæði til þess. Við þjálfararnir erum mjög stoltir af að hafa komið Kína í lokakeppni Heimsmeistaramótsins 2019 og að hafa unnið til bronsverðlauna í lokakeppni Asíu (Asian Cup) 2018 í okkar síðasta leik sem landsliðsþjálfarar. Af síðustu 6 landsleikjum okkar unnum við 5. Við göngum því stoltir frá borði og hlökkum til að takast á við ný spennandi verkefni hvar sem þau verða og erum klárlega reynslunni ríkari og betri þjálfarar eftir dvölina og ævintýrið okkar stórkostlega í Kína.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Fyrrum A-landsliðsþjálfari kvenna hjá Kína
Athugasemdir
banner
banner
banner