Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 23. júní 2016 22:35
Arnar Geir Halldórsson
Síminn íhugar að hafa Gumma Ben í mynd
Alvöru innlifun
Alvöru innlifun
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Lýsing Guðmundar Benediktssonar á lokasekúndum leiks Íslands og Austurríkis í gær hefur vakið heimsathygli.

Gummi Ben hefur verið fremsti knattspyrnulýsandi landsins undanfarin ár og var lánaður frá 365 til Skjásins til að lýsa leikjum Íslands á EM.

Hann lifir sig jafnan inn í leikinn og er óhætt að segja að hann hafi gert það þegar Theodór Elmar Bjarnason vann boltann og geystist fram völlinn á lokasekúndum leiksins í gær.

Eins og sjá má hér fyrir neðan hefur Símanum borist eftirspurnir um að hafa Gumma Ben í mynd á meðan hann lýsir leikjunum og er atburðarás gærkvöldsins sýnd á þann hátt.

Algjörlega magnað myndband.



Athugasemdir
banner
banner