„Þetta var mjög mikilvægur sigur og gaman að vera komnar í undanúrslit," sagði Sísí Lára eftir sigur ÍBV gegn Haukum í Borgunarbikarnum í kvöld.
ÍBV vann leikinn 1-0 en þetta var heldur jafn leikur.
Sísi sagðist vera alveg sama um það hvaða liði ÍBV mætir í undanúrslitunum.
„Mér er eiginlega alveg sama. Ég er til í að keppa við öll liðin og bara vinna þau."
Eins og þjálfari sinn þá talaði Sísi einnig um þreytu í mannskapnum.
„Við vorum svolítið þreyttar, auðvitað búið að vera mikið leikjaprógram, en þetta auðvitað kom á endanum"."
Athugasemdir