Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. júní 2017 13:30
Elvar Geir Magnússon
Yfirnjósnari Juventus ráðinn til Man Utd
Manchester United hefur fengið einn besta njósnara fótboltaheimsins til sín.
Manchester United hefur fengið einn besta njósnara fótboltaheimsins til sín.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur fengið ansi öflugan starfsmann en það er Javier Ribalta sem var yfirnjósnari Juventus.

United hefur verið að taka til í njósnakerfi sínu síðustu mánuði til að hafa besta netið yfir efnilega leikmenn í heiminum.

Ribalta er talinn vera lykilmaður í velgengni Juventus og sagður einn sá færasti í bransanum.

Í tilkynningu frá Ítalíumeisturunum er honum þakkað fyrir góð störf.

Ráðning Ribalta til Manchester United mun ekki hafa áhrif á áætlanir félagsins á leikmannamarkaði sumarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner