Ísland - Króatía
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Íslands segir vonir standa til að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með íslenska liðinu í leiknum gegn Króatíu á þriðjudaginn.
Jóhann Berg fór meiddur af velli í fyrsta leik Íslands á HM gegn Argentínu fyrir viku síðan og hefur ekkert getað æft síðan.
Jóhann Berg fór meiddur af velli í fyrsta leik Íslands á HM gegn Argentínu fyrir viku síðan og hefur ekkert getað æft síðan.
„Það var okkar plan að hann myndi ekki ná leiknum í gær en við vonumst eftir því að hann væri tilbúinn í næsta leik," sagði Heimir aðspurður út í stöðuna á Jóhanni sem meiddist á kálfa í leiknum gegn Argentínu.
Ísland er með eitt stig að loknum tveimur umferðum og Ísland þarf á sigri að halda og treysta á hagstæð úrslit úr leik Argentínu og Nígeríu til að komast áfram.
Athugasemdir