Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. júní 2018 11:56
Ingólfur Páll Ingólfsson
Liverpool búið að bjóða í Marco Asensio
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lagt fram risatilboð í einn efnilegasta leikmann Real Madrid, Marco Asensio. Spænska íþróttablaðið Mundo Deportivo segir frá þessu í dag.

Samkvæmt heimildum Mundo Deportivo hefur Liverpool lagt fram tilboð sem hljómar upp á 180 milljón evra eða 158 milljónir punda.

Liverpool hafa ekki enn fundið staðgengil fyrir Phillippe Coutinho sem gekk til liðs við Barcelona í janúar. Liðið hefur mikinn áhuga á að næla í Asensio.

Real Madrid hefur nú tilboðið til skoðunar og munu íhuga málið en eru líklegir til þess að hafna tilboðinu. Asensio er samningsbundinn Real Madrid til 2023 og er með 700 milljón punda klásúlu í samningnum.
Athugasemdir
banner
banner