Iago Aspas, framherji Liverpool, segir að refsing Luis Suarez fyrir að bíta Giorgio Chiellini sé of hörð.
Suarez var dæmdur í fjögurra mánaða bann frá afskipum af fótbolta en hann má ekki einu sinni mæta á fótboltaleiki.
Þá mátti Barcelona ekki kynna hann til sögunnar sem nýjan leikmann eftir að hann kom frá Liverpool.

,,Það eru til morðingjar sem fá minni refsingu," sagði Aspas sem verður í láni hjá Sevilla á komandi tímabili.
,,Að leyfa honum ekki að vera kynntur (hjá Barcelona), æfa með liðinu eða fara á völlinn er of mikið."
Athugasemdir