mið 23. júlí 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Birna Kristjánsdóttir í markið hjá Val (Staðfest)
Birna í leik með ÍR í sumar.
Birna í leik með ÍR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Markvörðurinn Birna Kristjánsdóttir hefur verið kölluð í Val úr láni hjá ÍR og er því klár í slaginn í næsta leik liðsins.

Þórdís María Aikman markvörður Vals er á leið í nám erlendis og vegna þess fékk Valur Birnu frá Breiðabliki fyrr í sumar.

Hún missti af stórum hluta síðustu leiktíðar vegna meiðsla og spilaði ekkert í undirbúningsleikjunum í vetur með Breiðabliki. Því var hún lánuð beint í ÍR til að komast í leikform.

Með ÍR spilaði hún 6 leiki í 1. deildinni í sumar en er nú komin til Vals að nýju.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner