Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. júlí 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Cesc Fabregas: Ég vil vinna allt
Mynd: Heimasíða Chelsea
Cesc Fabregas, leikmaður Chelsea á Englandi, segist ætla að vinna alla þá titla sem í boði eru á komandi árum.

Chelsea keypti Fabregas frá Barcelona í sumar fyrir 38 milljónir evra en hann kann vel við sig í úrvalsdeildinni eftir að hafa leikið með Arsenal um árabil.

Chelsea er í æfingaferð í Austurríki sem stendur en ljóst er að liðið er með einn sterkasta leikmannahópinn ef ekki sterkasta í deildinni sem stendur.

,,Mín markmið? Ég vil vinna gjörsamlega allt sem hægt er að vinna," sagði Fabregas.

,,Ég taldi rétt að fara á þessum aldri og ég vildi fá breytingu. Ég skoðaði öll tilboð sem ég var með í höndunum og eftir að hafa talað við Mourinho þá var Chelsea besti kosturinn," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner