Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. júlí 2014 14:27
Magnús Már Einarsson
Mourinho sleppti að horfa á son sinn til að ná í Fabregas
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas segir að það hafi hrifið sig þegar Jose Mourinho ákvað að funda með honum frekar en að horfa á son sinn spila lokaleik sinn á síðasta tímabili.

Fabregas kom til Chelsea frá Barcelona í sumar og hann segir Mourinho hafa sannfært sig um að taka skrefið.

,,Þegar ég vissi að Chelsea vildi kaupa mig þá skoðaði ég stöðuna og ræddi málin við fjölskyldu mína," sagði Fabregas.

,,Síðan talaði ég við stjórann, Jose kom og hitti mig. Ég man að þetta var sunnudagur og hann flaug til Spánar sem þýddi að hann missti af lokaleiknum hjá syni sínum."

,,Það að hann gerði það sýndi mér hversu mikið hann vildi fá mig til Chelsea. Það gerði mikið fyrir mig."

Athugasemdir
banner
banner
banner