Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. júlí 2014 19:00
Magnús Már Einarsson
Shaw: Ekki pressa að koma inn fyrir Evra
Luke Shaw.
Luke Shaw.
Mynd: Getty Images
Luke Shaw segist ekki finna fyrir pressu á að fylla skarð Patrice Evra.

Evra hefur gengið til liðs við Juventus eftir átta og hálft ár í vinstri bakverðinum á Old Trafford.

Shaw mun fylla skarð hans en þessi 19 ára gamli leikmaður kom til United frá Southampton á 30 milljónir punda.

,,Ég finn ekki fyrir pressu að koma inn fyrir Evra," sagði Shaw.

,,Hann hefur verið frábær fyrir þetta félag undanfarin tíu ár og vonandi get ég haldið því áfram."
Athugasemdir
banner
banner