Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 23. júlí 2016 16:43
Jóhann Ingi Hafþórsson
2. deild: Staða KF orðin ansi svört eftir hádramatík
Pétur Bjarnason skoraði sigurmarkið í dag.
Pétur Bjarnason skoraði sigurmarkið í dag.
Mynd: BÍ/Bolungarvík
KF 2 - 3 Vestri
0-1 Sólon Breki Leifsson ('20)
0-2 Ernir Bjarnason ('26)
1-2 Isaac Ruben Rodriguez Ojeda ('56)
2-2 Isaac Ruben Rodriguez Ojeda ('90)
2-3 Pétur Bjarnason ('93)

Það vantaði ekki dramatíkina í 2. deildinni í dag en þá mættust KF og Vestri í svakalegum leik. Fyrir leikinn var KF langneðst í deildinni og þurfti eitthvað svakalegt til að halda sæti sínu í deildinni.

Það byrjaði ekki gæfulega gegn Vestra í dag. Eftir 26 mínútur var staðan orðin 0-2 og útlitið dökkt en þannig var staðain þegar flautað var til hálfleiks.

KF voru hins vegar sterkari í seinni hálfleik og minnkuðu muninn eftir rúmar tíu mínútur í honum, þar var að verki Isaac Ruben Rodriguez Ojeda. Honum tókst svo að jafna í blálokin en þar með var sagan ekki öll sögð.

Vestra tókst nefnilega að skora sigurmarkið á loka augnablikunum og er KF því sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni. Vestri er í efri hluta deildarinnar, fimm stigum frá 2. sæti.
Athugasemdir
banner
banner