Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
De Gea sannfærður um að United muni berjast um alla titla
David De Gea.
David De Gea.
Mynd: Getty Images
David de Gea er sannfærður um að Manchester United geti barist um alla titla undir stjórn Jose Mourinho.

Lífið hefur verið erfiðara hjá United en mörgum grunaði, eftir að Sir Alex Ferguson yfirgaf félagið.

Nú hafa Eric Bailly, Henrikh Mkhitaryan og Zlatan Ibrahimovic bæst í hópinn hjá United og búast flestir við að Paul Pogba spili í Manchester á næstu leiktíð.

De Gea er hrifinn af hversu aktívur Mourinho er í félagsskiptaglugganum og segist hann vera viss um að United muni berjast um alla titla aftur.

„Við erum komnir með topp leikmenn og við erum Manchester United, við viljum berjast um alla tilta."

„Ég finn til með stuðningsmönnunum því þetta hefur ekki gengið eins vel og þeir vonuðust til en við erum mjög sterkir núna og ég býst við að við munum berjast um alla titla," sagði De Gea.
Athugasemdir
banner
banner
banner